Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1201, 117. löggjafarþing 500. mál: lax- og silungsveiði.
Lög nr. 63 17. maí 1994.

Lög um breytingu á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum.


1. gr.

     1. gr. laganna orðast svo:
     Merking orða í þessum lögum er sem hér segir:
      Alifiskur: Fiskur sem alinn er eða látinn ganga sjálfala í tjörnum eða ílátum.
      Almenningur í stöðuvatni: Sá hluti stöðuvatns sem liggur fyrir utan 115 m breitt vatnsbelti (netlög) landareigna þeirra sem að vatninu liggja.
      Á: Straumvatn frá ósasvæði til upptaka.
      Áll: Sá staður langs eftir vatni, stöðuvatni eða straumvatni þar sem dýpi er mest milli grynninga eða sandeyra sem eigi teljast bakkar. Nú eru fleiri álar en einn og heitir sá höfuðáll sem vatnsmestur er.
      Bakki: Fast takmark á farvegi straumvatns eða legi stöðuvatns, svo sem klettar, gróið land eða eyrar sem vatn fellur eigi yfir í meðalvexti eða sjór um stórstraumsflæði.
      Dráttur: Staður í veiðivatni þar sem ádráttarveiði verður við komið.
      Eldisfiskur: Sjá alifiskur.
      Eldisstofn: Hópur vatnafiska alinn í eldisstöð undan fiski sem alið hefur allan sinn aldur í fiskeldisstöð.
      Félagsveiði: Félagsskapur eigenda eða notenda veiðiréttar um sameiginlega hagnýtingu veiðihlunninda.
      Fiskeldi: Geymsla, gæsla og fóðrun vatnafiska, hafbeit, klak- og seiðaeldi, hvort sem er í söltu eða ósöltu vatni.
      Fiskeldisstöð: Staður þar sem vatn, sjór, land eða mannvirki er nýtt í þágu fiskeldis.
      Fiskihverfi: Veiðivatn eða -vötn sem sami fiskstofn byggir og fer um fram og aftur eða ætla má að sami fiskstofn byggi og fari um fram og aftur þá er ræktaður hefur verið.
      Fiskrækt: Hvers konar aðgerðir sem ætla má að skapi eða auki fiskmagn veiðivatns, sbr. 2. mgr. 44. gr.
      Fiskræktarslepping: Slepping samstofna smáseiða eða gönguseiða til aukningar á fiskigengd í veiðivatni.
      Fiskur: Lax (Salmo salar), silungur (Salmo trutta og Salvelinus alpinus) og regnbogasilungur (Oncorhynchus mykis), áll (Anguilla anguilla) eða annar vatnafiskur ef ræktaður verður.
      Fiskvegur: Hvers konar mannvirki er gerir veiðivötn fiskgeng eða greiðir fiskför um þau.
      Föst veiðivél: Veiðitæki sem fest er í vatni og fiskur getur ánetjast í eða króast af, svo sem lagnet, króknet, kista og girðing.
      Geldstofn: Vatnafiskur sem ekki framleiðir frjóar kynfrumur.
      Göngusilungur: Silungur er gengur úr sjó í ósalt vatn, svo sem sjóbirtingur (urriði) og sjóreyður (bleikja).
      Hafbeit: Slepping gönguseiða til sjógöngu og veiði kynþroska fiska til slátrunar er þeir ganga úr sjó í ferskt vatn.
      Hafbeit til stangaveiði: Slepping gönguseiða í veiðivatn með takmarkaða framleiðslu til aukningar á fiskigengd til stangaveiði.
      Hafbeitarstofn: Hópur vatnafiska sem klakinn hefur verið út undan fiski úr hafbeit.
      Hafbeitarstöð: Staður þar sem vatn, sjór, land eða mannvirki er nýtt í þágu hafbeitar.
      Jörð: Lögbýli samkvæmt ábúðarlögum.
      Kvíaeldi: Fiskeldi í netkvíum (netbúrum) í fersku vatni eða söltu.
      Kvísl: Hluti af straumvatni sem fellur sér milli bakka.
      Lagardýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa og geta afkvæmi í sjó eða fersku vatni.
      Laxastofn: Hópur laxa sem hrygnir á tilteknum stað og á tilteknum tíma og hrygnir ekki í neinum mæli með öðrum hópum á öðrum stað eða á öðrum tíma.
      Lögn: Staður í vatni þar sem fastri veiðivél verður við komið.
      Netlög: Vatnsbotn 115 metra út frá bakka landareignar að straumvatni eða stöðuvatni, svo og sjávarbotn 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði landareignar.
      Ós í á: Sá staður þar sem straumur þverár sameinast straumi höfuðár.
      Ós í sjó: Sá staður þar sem straumur ár hverfur í sjó um stórstraumsfjöru.
      Ós í stöðuvatn: Sá staður þar sem straumur ár hverfur í stöðuvatn.
      Ós úr stöðuvatni: Sá staður þar sem straumlína ár hefst í stöðuvatni.
      Ósasvæði: Svæði í straumvatni er nær frá ósi í sjó upp til þess staðar þar sem straumlína hverfur um stórstraumsflæði.
      Sjór: Salt vatn utan árósa.
      Strandeldi: Eldi vatnafiska til slátrunar í tönkum eða kerum á landi.
      Straumlína (strengur): Lína sem liggur eftir endilöngu straumvatni um þá staði þess þar sem straumur er mestur.
      Straumvatn: Ósalt vatn, á eða ósasvæði sem í er greinilegur straumur, þá er enginn vöxtur er í, og um stórstraumsfjöru.
      Stöðuvatn: Ósalt vatn sem eigi er í greinilegur straumur annar en sá sem stafar af sjávarföllum, vindi eða aðrennsli í leysingum.
      Vatn: Ósalt vatn með föstu legi eða farvegi, straumvatn eða stöðuvatn.
      Vatnafiskur: Fiskur sem lifir að hluta eða allan sinn lífsferil í fersku vatni.
      Vatnasilungur: Silungur sem elur allan aldur sinn í ósöltu vatni, svo sem vatnaurriði, vatnableikja (reyður), lækjasilungur og murta.
      Veiðihlutur: Hundraðshluti jarðar í veiði vatns samkvæmt arðskrá.
      Veiðimagn: Samanlögð þyngd veiddra fiska.
      Veiðimál: Hvers konar mál er lúta að lax-, silungs- og álaveiði, fiskrækt eða fiskeldi.
      Veiðitala: Tala veiddra fiska.
      Veiðivatn: Á eða stöðuvatn sem veiði er í eða mætti í vera ef fiskur væri ræktaður þar.
      Veiðivél: Sjá föst veiðivél.
      Villtur laxastofn: Hópur laxfiska sem klekst út og elst upp í veiðivatni.

2. gr.

     IV. kafli laganna, er hefur fyrirsögnina Veiðistjórn lax- og göngusilungs og fiskrækt, orðast svo:
     
     a. (14. gr.)
     1. Eigi má veiða lax í sjó og ekki silung utan netlaga.
     2. Óheimilt er að koma með lax að landi sem veiðst hefur í sjó í veiðitæki sem ætluð eru til veiði annarra fiska. Ber þeim er veiðir lax á þann hátt að sleppa honum í sjó aftur.
     3. Nú hefur laxveiði í sjó verið metin sérstaklega til dýrleika í fasteignamati því er öðlaðist gildi árið 1932 eða tillit hefur verið tekið til hennar við ákvörðun fasteignaverðs í því mati og er þá sú veiði leyfileg.
     4. Veiði lax og göngusilungs í sjó skal hlíta sömu reglum sem veiði í ósöltu vatni eftir því sem unnt er. Ráðherra setur reglur um þessa veiði.
     5. Nú liggur veiðivatn eða hafbeitarstöð svo nærri sjávarveiði, slíkri sem getur í 3. mgr., að veiðimálastjóri telji að sjávarveiðin rýri veiði í vatninu eða hjá stöðinni en veiðieigendur í vatninu, einn eða fleiri, eða eigendur hafbeitarstöðvar vilja leysa sjávarveiðina til sín og er ráðherra þá rétt að leyfa það að fengnu samþykki veiðimálanefndar. Um mat á andvirði veiðiréttar og greiðslu þess fer eftir því sem segir í 94. og 96. gr.
     6. Heimild landareigna, sem liggja að sjó, til silungsveiða skal miðast við þann netafjölda sem viðkomandi landareign hafði síðustu fimm ár fyrir gildistöku laga um lax- og silungsveiði frá 1957. Um ágreining skal fjalla skv. 94. gr. Rétt er ráðherra að setja reglur um silungsveiði í sjó.
     7. Rétt er ráðherra að takmarka eða banna veiði göngusilungs í sjó á tilteknum svæðum og um tiltekinn tíma enda komi ósk um slíka friðun frá einstökum veiðieigendum eða veiðifélagi sem ætla verði að njóti góðs af friðun þessari. Um mat á bótum vegna slíkrar takmörkunar fer skv. 94. og 96. gr., en bætur skulu greiddar af þeim sem takmörkunar óskar.
     8. Með sama skilorði og í 7. mgr. segir er ráðherra rétt að banna veiði fiska framan við árósa þar sem hætta er á að lax og silungur geti veiðst í veiðiútbúnað sem ætlaður er til slíkrar veiði.
     
     b. (15. gr.)
     1. Veiða má silung í sjó á færi og á stöng, í ádráttarnet og í lagnet, þó eigi á lóð, í króknet, fleygnætur, herpinætur né önnur veiðitæki þau er lax má í veiða.
     2. Á tímabilinu 1. apríl til 1. október má eigi leggja net né hafa ádrátt í sjó nær ósi straumvatns en 1.500 metra ef meðalvatnsmagn ár er innan við 25 m 3 á sekúndu en 2.000 metra ef vatnsmagnið er meira og eigi nær en 1.500 metra frá hafbeitarstöð, enda gangi fiskur í það vatn eða þá hafbeitarstöð. Fullt samráð skal hafa við viðkomandi veiðifélag eða hafbeitarstöð varðandi ráðstöfun stangaveiði á þessu svæði. Rétt er ráðherra eftir tillögum veiðimálastjóra að takmarka stangaveiði á friðuðu svæði við ós og setja reglur um veiðitæki og möskvastærð neta við slíka ósa. Þó getur ráðherra að fengnu áliti veiðimálastjóra leyft ádrátt fyrir síld og loðnu á friðuðu svæði tiltekinn tíma árs.
     3. Til verndunar villtra laxastofna er ráðherra rétt að fengnum tillögum veiðimálastjóra að friða tiltekin svæði í sjó í nágrenni mikilvægra veiðivatna þar sem ekki verði heimiluð starfsemi á sviði fiskeldis og hafbeitar með laxfiska. Ráðherra skal setja reglur um þessi friðunarsvæði.
     
     c. (16. gr.)
     1. Eigi má hafa ádrátt í ósi straumvatns eða ósasvæði.
     2. Eigi má veiða fisk í ósum í ár eða ósum í stöðuvötn og eigi 100 metra upp frá slíkum ósum eða 250 metra niður frá þeim. Eigi má heldur veiða fisk í ósum úr stöðuvötnum þeim er lax eða göngusilungur fer um né 50 metra upp eða niður frá slíkum ósum.
     3. Ráðherra getur eftir tillögum veiðimálastjóra veitt undanþágu að nokkru leyti eða öllu frá banni því er ræðir um í 1. og 2. mgr. þar sem svo hagar til að veiði í ós eða við er eigi talin skaðvænleg.
     4. Ráðherra er rétt með samþykki veiðimálanefndar, hlutaðeigandi veiðifélags og eftir tillögum veiðimálastjóra að banna alla veiði eða tilteknar veiðiaðferðir upp eða niður frá ósi enda þyki það nauðsynlegt til viðhalds veiði í vatni. Bann þetta skal standa tiltekinn tíma og má binda það því skilorði að veiðieigendur eða ábúendur greiði bætur þeim aðila sem öðrum fremur missir af veiði vegna slíks banns. Ákveða má bætur með mati skv. 94. gr. ef eigi semst.
     
     d. (17. gr.)
     Í straumvatni eða hluta straumvatns þar sem veiði er stunduð með föstum veiðivélum skal fiskur eiga frjálsa för eftir miðju vatni og nefnist þar gönguhelgi. Hún tekur yfir þriðjung af breidd straumvatns um miðbik en helming af breidd óss eða ósasvæðis. Þó skal fiskur eiga frjálsa för eftir aðalstraumlínu þótt skemmra liggi frá bakka en nemi þriðjungi af breidd vatns. Nú greinir menn á um gönguhelgi eða aðalstraumlínu og má þá skjóta þeim ágreiningi til mats skv. 94. gr.
     
     e. (18. gr.)
     1. Eigi má veiða lax nema á tímabilinu frá 20. maí til 30. september ár hvert. Nú telst sannað að fiskur hrygni í veiðivatni í september og er ráðherra þá rétt eftir tillögum veiðimálastjóra að ákveða að veiðitíma ljúki fyrr í því vatni. Ádráttarveiði er eigi heimil eftir 31. ágúst.
     2. Á tímabili því, er getur í 1. mgr., má hvergi stunda laxveiði lengur en 3 og 1/ 2 mánuð. Rétt er ráðherra að setja nánari reglur um veiðitíma í vatni hverju að fengnum tillögum stjórnar hlutaðeigandi veiðifélags og veiðimálanefndar og með samþykki veiðimálastjóra.
     3. Göngusilung má veiða frá 1. apríl til 10. október ár hvert. Þó skulu lok veiðitíma göngusilungs í veiðivatni, þar sem megnið af veiðinni er villtur laxastofn, miðast við 30. september skv. 1. mgr. Þá er sérstaklega stendur á getur ráðherra eftir tillögum veiðimálastjóra leyft að göngusilungur sé veiddur utan þess tíma í lagnet, á stöng, á dorg og færi.
     4. Frá 1. apríl og þar til laxveiði hefst má eigi nota önnur veiðitæki til veiði göngusilungs en stöng og færi, lagnet og ádráttarnet.
     5. Nú veiðist lax á tímabilinu frá 1. apríl og þar til laxveiðitími hefst og er þeim er veiðir skylt að sleppa honum í vatn aftur.
     6. Á friðunartíma þeim sem getur í þessari grein skulu allar fastar veiðivélar teknar upp úr veiðivatni, sbr. þó 3. mgr.
     
     f. (19. gr.)
     1. Á veiðitíma þeim er getur í 18. gr., skal lax og göngusilungur vera friðaður gegn allri veiði, annarri en stangaveiði, 84 stundir á viku hverri, frá föstudagskvöldi kl. 10 til þriðjudagsmorguns kl. 10. Friðunartíma þennan má stytta í 60 stundir á viku sé að dómi veiðimálastjóra, veiðimálanefndar og hlutaðeigandi veiðifélags engin hætta á að um þverrandi fiskstofn sé að tefla á viðkomandi veiðisvæði. Með sama skilorði má lengja friðunartímann um allt að 24 stundir verði talin hætta á þverrandi fiskstofni í fiskihverfinu eða til jöfnunar fiskigengd í því vatni. Ádrátt má aldrei hafa frá kl. 9 síðdegis til kl. 9 árdegis og aldrei nema tvo daga í viku hverri, þriðjudag og miðvikudag. Stangaveiði og veiði með færi má stunda frá sólarupprás til sólseturs, þó aldrei á tímabilinu frá kl. 3 eftir miðnætti til kl. 7 árdegis og aldrei lengur en 12 klst. á sólarhring hverjum. Rétt er að setja nánari reglur um daglegan stangaveiðitíma með sama hætti og ákveðið er í 2. mgr. 18. gr. Nú fer lax og göngusilungur um stöðuvatn og skal hann friðaður þar svo sem nú var sagt.
     2. Ráðherra er rétt að ákveða að friðun sú sem getur í 1. mgr. skuli gilda aðra daga ofar í straumvatni en neðar enda telji veiðimálastjóri það nauðsynlegt til jöfnunar fiskigengd í því vatni.
     
     g. (20. gr.)
     Ráðherra er rétt eftir tillögum veiðimálastjóra og með samþykki veiðimálanefndar að friða tiltekin svæði í vatni þar sem fiskur safnast saman til hrygningar eða vegna fyrirstöðu á göngu, svo sem undir fossum enda telji veiðimálastjóri að veiði á þeim stöðum sé hættuleg fiskstofni vatnsins. Friðun þessa má binda tiltekinn tíma. Slík friðun er því skilyrði háð að veiðieigendur eða ábúendur í fiskihverfi greiði bætur þeim aðila sem missir verulega og öðrum fremur af veiði vegna friðunar. Ákveða má bætur með mati skv. 94. gr. ef eigi semur.
     
     h. (21. gr.)
     Ráðherra er rétt eftir tillögum veiðimálastjóra að friða heilt vatn gegn allri veiði eða einstökum veiðiaðferðum enda sé sú friðun nauðsynleg til verndar fiskstofni þess vatns en leita skal hann samþykkis hlutaðeigandi veiðifélags og veiðimálanefndar.
     
     i. ( 22. gr.)
     1. Þrátt fyrir ákvæði 16.–21. gr., svo og ákvæði 38. gr., er leyfilegt að veiða lax og silung til vísindalegra rannsókna og eru slíkar veiðar undanþegnar friðunarákvæðum laga þessara.
     2. Til veiði þeirrar er getur í 1. mgr. þarf veiðiskírteini. Ráðherra gefur út veiðiskírteini að fengnum meðmælum veiðimálastjóra. Veiðiskírteinið skal gefið út handa einstaklingi og gildir það um tiltekinn tíma.
     
     j. ( 23. gr.)
     1. Skylt er að gera fiskræktaráætlun, er nái til fimm ára í senn, í hverju veiðivatni þar sem ætlunin er að stunda fiskrækt með sleppingu seiða, hafbeit til stangaveiði eða öðrum atriðum fiskræktar sem um getur í 2. mgr. 44. gr.
     2. Fiskræktaráætlun skv. 1. mgr. er háð samþykki veiðimálastjóra, enda hafi veiðifélag eða meiri hluti veiðieigenda við veiðivatn ákveðið að ráðast í slíka framkvæmd. Í leyfið skal setja skilyrði sem veiðimálastjóri telur nauðsynleg til verndar viðkomandi fiskstofni gegn sjúkdómum og erfðablöndun og nánar er kveðið á um í reglugerð sem ráðherra setur.
     3. Nú vill veiðifélag eða meiri hluti veiðieigenda við veiðivatn láta veiða lax og silung til hrognatöku í því vatni og er það háð leyfi veiðimálastjóra með samþykki ráðherra. Leyfið gildir um tiltekinn tíma og í það skal setja skilyrði sem eru nauðsynleg til verndar fiskstofni skv. 2. mgr. og felur í sér heimild skv. 1. mgr. 22. gr.
     4. Ráðherra getur skv. 1. og 2. mgr. heimilað notkun hafbeitarstofns úr sama landshluta til hafbeitar á laxi í veiðivatni enda sé fullnægt skilyrðum um samþykki veiðieigenda við veiðivatnið sem um getur í 2. mgr.

3. gr.

     V. kafli laganna, er hefur fyrirsögnina Veiðistjórn vatnasilungs, orðast svo:
     
     a. (24. gr.)
     1. Vatnasilung er heimilt að friða fyrir allri veiði ef ástæða þykir til. Veiðimálastjóri skal ákveða lengd friðunartíma í vatni hverju í samráði við hlutaðeigandi veiðifélag.
     2. Ráðherra er rétt að fengnum tillögum veiðimálastjóra að ákveða allt að tveggja sólarhringa friðun á viku hverri í stöðuvatni.
     3. Ef beitt er ákvæðum 1. mgr. um friðun í vatni er ráðherra rétt eftir tillögum veiðimálastjóra að leyfa lagnetaveiði til heimilisnota á friðunartíma. Leyfi þetta skal binda nauðsynlegum skilyrðum til að tryggja að hrygnandi fiskur verði eigi veiddur á þennan hátt, svo sem skilyrði um fjarlægð lagna frá hrygningarstöðvum.
     4. Ráðherra getur eftir tillögum veiðimálastjóra sett reglur um friðun vatnasilungs þar sem hann hrygnir að sumarlagi.
     
     b. (25. gr.)
     Nú telst rétt að uppræta fisk úr veiðivatni, svo sem vegna sjúkdóma eða til þess að rækta aðrar fisktegundir en þær er fyrir voru í vatninu, og skal ráðherra heimilt að fengnum meðmælum veiðimálastjóra og með samþykki eiturefnanefndar að leyfa notkun sérstakra efna við eyðingu fiskstofns vatns með þeim skilyrðum sem þurfa þykir.
     
     c. (26. gr.)
     Ákvæði 22. gr. taka einnig yfir veiði vatnasilungs.

4. gr.

     VII. kafli laganna, er hefur fyrirsögnina Fiskvegir og önnur mannvirkjagerð í og við veiðivötn, orðast svo:
     
     a. (39. gr.)
     1. Ráðherra er rétt að leyfa að gerður sé fiskvegur í vatni eða meðfram vatni enda samþykki veiðimálastjóri gerð fiskvegar og hafi umsjón með framkvæmd verksins.
     2. Hverjum manni er skylt að láta af hendi land, landsafnot, vatn eða afnot vatns er með þarf til fiskvegar, og þola verður hann þær eignarkvaðir, óhagræði og takmörkun á afnotarétti sem fiskvegurinn kann að hafa í för með sér, enda komi fullar bætur fyrir eftir mati nema samkomulag verði.
     3. Um breytingu á fiskvegi eða vatnsmagni í honum fer eftir því sem segir í 1. og 2. mgr.
     
     b. (40. gr.)
     Eigi má veiða eða styggja fisk í fiskvegi né nær neðra mynni hans en 30 metra og eigi nær efra mynni hans en 20 metra. Eigi má spilla fiskvegum né tálma með nokkrum hætti fiskför að þeim né um þá.
     
     c. (41. gr.)
     1. Nú er stífla gerð í veiðivatni eða önnur mannvirki sem tálma fiskför í vatninu og eru eigi lögleg veiðitæki og skal þá þeim er gera lætur skylt að gera fiskveg í vatninu eða meðfram því til þess að fiskur geti átt jafngreiða för um það og áður. Honum er skylt að halda fiskveginum við. Gerð fiskvegar er háð samþykki veiðimálastjóra og skal verkið unnið undir umsjón hans.
     2. Ákvæði 1. mgr. gilda eigi:
  1. ef vatn er eigi fiskgengt af öðrum ástæðum,
  2. ef mannvirki lýtur að því að bæta veiðiskilyrði eða lífsskilyrði í veiðivatni og það hefur verið samþykkt á aðalfundi veiðifélags enda sé það háð samþykki veiðimálastjóra á sama hátt sem fiskvegur,
  3. ef talið er í matsgerð að gerð fiskvegar og viðhald hafi meiri kostnað í för með sér en hagnaði af veiði nemur enda séu þá veiðispjöll þau, er af mannvirkinu leiðir, bætt fullum bótum.
     3. Heimilt er eignarnám, svo sem segir í 2. mgr. 39. gr., til fiskvegar sem gerður er samkvæmt þessari grein.
     
     d. ( 42. gr.)
     1. Nú er vatni veitt úr veiðivatni til áveitu, vatnsveitu eða annarra áþekkra nota eða vatni er veitt í veiðivatn úr áveituskurði, vatnsveituskurði, öðrum skurði eða leiðslu og getur þá veiðimálastjóri krafist þess að búið sé svo um skurð eða leiðslu að fiskur eða fiskseiði gangi eigi í. Kostnað af umbúnaði þessum greiðir eigandi veitu.
     2. Nú verða tíðar breytingar á vatnsmagni veiðivatns vegna vatnsmiðlunar og skal þá haga miðlun þannig að sem minnst tjón hljótist á fiskstofni veiðivatns. Svo skal og til haga þá er uppistöður eru tæmdar, svo sem vegna hreinsunar. Hafa skal samráð við veiðimálastjóra um þetta.
     
     e. (43. gr.)
      Nú er fyrirhugað að taka jarðefni eða gera mannvirki í eða við veiðivatn sem hætta er á að hafi áhrif á lífríki vatnsins, og skal þá veiðimálastjóri láta fara fram líffræðilega úttekt á viðkomandi veiðivatni áður en ráðist er í framkvæmdina. Kostnað af úttektinni greiðir sá er að framkvæmdum stendur. Þegar niðurstaða liggur fyrir skal heimilt að ráðast í viðkomandi framkvæmdir enda samþykki veiðimálastjóri tilhögun þeirra.

5. gr.

     IX. kafli laganna, er hefur fyrirsögnina Fiskeldi og hafbeit, orðast svo:
     
     a. (62. gr.)
     1. Til fiskeldis og hafbeitar þarf leyfi landbúnaðarráðherra að fenginni umsögn veiðimálastjóra.
     2. Nú æskir maður þess að taka upp fiskeldi, þar á meðal kvíaeldi eða hafbeit á laxfiskum, og skal hann senda umsókn um rekstrarleyfi til veiðimálastjóra um það. Umsókn skulu fylgja skilríki um afnot lands, vatns og sjávar, svo og áætlun um rekstur og kostnaðaráætlun, auk heimildar til mannvirkjagerðar og starfsemi samkvæmt ákvæðum annarra laga er varða slíkan atvinnurekstur.
     3. Er skilríkjum hefur verið skilað og mannvirkjagerð lokið skal veiðimálastjóri gera úttekt á stöðinni. Teljist frágangur fullnægjandi skal veiðimálastjóri mæla með staðfestingu rekstrarleyfis. Ráðherra gefur síðan út rekstrarleyfi og öðlast starfsemin þar með réttindi skv. 66. gr. Í rekstrarleyfi skal tilgreina leyfilega árlega framleiðslu í kvía- og strandeldi og hámark sleppinga á seiðum í hafbeit. Ráðherra getur heimilað aukningu í fjölda slepptra seiða í hafbeit að fenginni umsögn veiðimálanefndar og veiðimálastjóra.
     4. Ráðherra er rétt að setja skilyrði fyrir rekstrarleyfi í reglugerð. Hafbeitar- og eldisstöðvar í rekstri við gildistöku þessara laga skulu endurnýja rekstrarleyfi innan árs frá gildistöku þeirra.
     
     b. (63. gr.)
     Skylt er að láta af hendi við veiðifélag land eða landsafnot, vatn eða afnot vatns, er þarf til byggingar og starfsemi klakstöðvar eða klak- og eldisstöðvar, svo og þola þær eignarkvaðir, óhagræði og takmörkun á afnotarétti er bygging slíkra stöðva eða starfsemi kann að hafa í för með sér, enda komi fullar bætur fyrir eftir mati nema samkomulag verði.
     
     c. (64. gr.)
     1. Nú er vatn tekið úr veiðivatni til afnota í eldisstöð og skal þá búa svo um vatnsleiðslur að eldistjörn og frá að fiskur gangi eigi úr veiðivatni í leiðslur. Umbúnaður slíkra vatnsleiðslna skal háður samþykki veiðimálastjóra.
     2. Nú er straumvatn stíflað vegna eldisstöðvar og fer þá um gerð stíflu skv. 41. gr.
     
     d. (65. gr.)
     Nú truflar vatnstaka til eldisstöðvar göngu fisks í veiðivatni og skal þá haga vatnstöku svo að hún valdi sem minnstri truflun. Tilhögun vatnsveitu skal háð samþykki veiðimálastjóra.
     
     e. (66. gr.)
     Friðunarákvæði þessara laga, svo sem um gönguhelgi, veiðitíma, stærð fisks, veiðitæki og veiðiaðferðir, taka ekki til veiða á eigin fiski í eldisstöðvum, hafbeitarstöðvum né í eldiskvíum.
     
     f. (67. gr.)
     Þrátt fyrir ákvæði 66. gr. skal ráðherra eftir tillögum veiðimálastjóra og með samþykki veiðimálanefndar setja reglur um töku á laxi er kemur úr sjó í hafbeitarstöð og um merkingar og sýnatöku úr fiskinum.
     
     g. (68. gr.)
     Eldi annarra lagardýra í kvía- og strandeldi skal hlíta sömu reglum og eldi vatnafiska eftir því sem unnt er.
     
     h. (69. gr.)
     Forráðamenn eldisstöðva, hafbeitarstöðva og kvíaeldis skulu gefa veiðimálastjóra árlega skýrslu um starfsemi stöðvanna, svo sem framleiðslumagn, eldisrými, fóðurnotkun, birgðir af fiski, uppruna hans og önnur atriði sem nauðsynleg þykja.
     
     i. (70. gr.)
     Nú veldur eldisstöð rýrnun á veiði í vatni og skal þá bæta tjónið eftir mati ef eigi semur.
     
     j. (71. gr.)
     Ráðherra er rétt að fengnum meðmælum veiðimálastjóra að ákveða friðunarsvæði í sjó framan við frárennsli fiskeldis- og hafbeitarstöðva á sama hátt og ákveðið er í 7. og 8. mgr. 14. gr.
     
     k. (72. gr.)
     Missi fiskeldisstöð með rekstrarleyfi út eldisfisk er henni heimil, þrátt fyrir friðun á villtum fiski á svæðinu, veiði innan 200 metra frá stöðinni, enda sé það utan netlaga og veiðimálastjóra hafi verið tilkynnt um það. Heimild þessi takmarkast við þrjá sólarhringa frá því að fiskur slapp út ef þetta gerist á göngutíma laxfiska og skal framkvæmd í samráði við fulltrúa veiðimálastjóra.
     
     l. ( 73. gr.)
     Fiskeldis-, hafbeitar- og kvíaeldisstöðvar hafi með sér samtök, Landssamband fiskeldis- og hafbeitarstöðva, sem gæti sameiginlegra hagsmuna fiskeldismanna.

6. gr.

     XIII. kafli laganna, er hefur fyrirsögnina Stjórn veiðimála, Veiðimálastofnun og eftirlit, orðast svo:
     
     a. (85. gr.)
     1. Landbúnaðarráðherra hefur yfirstjórn allra veiðimála.
     2. Til aðstoðar ráðherra um stjórn veiðimála eru veiðimálanefnd og veiðimálastjóri.
     
     b. (86. gr.)
     1. Ráðherra skipar veiðimálastjóra. Veiðimálastjóri skal hafa lokið háskólaprófi í raunvísindum og vera sérmenntaður í vatnalíffræði eða fiskifræði vatnafiska:
  1. hann er ráðherra til aðstoðar um allt sem að stjórn veiðimála lýtur,
  2. hann annast þau verkefni sem honum eru sérstaklega falin í lögum þessum,
  3. hann gerir tillögur um setningu reglugerða og önnur ákvæði sem sett eru samkvæmt lögum um friðun, fiskrækt, fiskeldi eða veiði,
  4. hann annast merkingu vatnafiska en getur gefið öðrum leyfi til merkinga með skilyrðum sem hann setur,
  5. hann annast söfnun skýrslna um veiði, fiskrækt og fiskeldi,
  6. hann gerir tillögur um skipun veiðieftirlitsmanna.
     2. Veiðimálastjóri er forstjóri Veiðimálastofnunar sem er rannsókna- og þjónustustofnun í veiðimálum og hefur hann á hendi daglega stjórn stofnunarinnar og umsjón með rekstri hennar. Forstjóri ræður starfsfólk. Heimilt er að ráða aðstoðarforstjóra til að sinna rekstrarþáttum stofnunarinnar. Ráðherra er rétt að setja reglugerð um verkefni og stjórn stofnunarinnar.
     Hlutverk Veiðimálastofnunar er:
  1. að annast verkefni sem miða að því að auka fiskigengd í ám og vötnum og bæta nýtingu þeirra,
  2. að annast rannsóknir á ám og vötnum og á vatnafiskum, í fiskrækt, fiskeldi og hafbeit,
  3. að annast þróunarstarf og leiðbeiningar í veiðimálum,
  4. að annast rannsókn á einstökum veiðivötnum fyrir eigendur þeirra og veiðifélög enda greiði þessir aðilar kostnað af verkinu, sbr. 3. mgr. þessarar greinar.
     3. Veiðimálastofnun er heimilt að taka að sér rannsóknir og önnur verkefni á starfssviði sínu fyrir einstaklinga, félög og stofnanir gegn endurgjaldi.
     
      c. (87. gr.)
     1. Veiðimálastofnun er heimilt að starfrækja deildir á landsbyggðinni samkvæmt ákvörðun ráðherra að fengnum tillögum stjórnar Veiðimálastofnunar og veiðimálastjóra.
     2. Heimilt er að starfrækja rannsóknastöð í fiskeldi og hafbeit í tengslum við Veiðimálastofnun. Stöðin er rannsóknavettvangur fyrir klak og eldi laxfiska, kynbætur og hafbeit. Ráðherra er heimilt að setja reglur um verkefni og skipa fag- og stjórnarnefnd fyrir stöðina en veiðimálastjóri skal hafa umsjón með hlutdeild ríkisins í henni.
     
     d. (88. gr.)
     1. Stjórn Veiðimálastofnunar skal skipuð fimm mönnum sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn, einn án tilnefningar, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands stangaveiðifélaga, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands veiðifélaga og einn samkvæmt tilnefningu Búnaðarfélags Íslands. Ráðherra skipar formann. Varamenn skal skipa með sama hætti.
     2. Stjórn Veiðimálastofnunar hefur á hendi yfirstjórn stofnunarinnar og deilda hennar og markar meginatriði um stefnu og starf hennar. Stjórnin gerir tillögur til ráðherra um starfs- og fjárhagsáætlun og staðfestir reikninga stofnunarinnar að loknu ársuppgjöri.
     
     e. (89. gr.)
     1. Í veiðimálanefnd eiga sæti fimm menn. Ráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn, einn án tilnefningar, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands stangaveiðifélaga og tvo samkvæmt tilnefningu Landssambands veiðifélaga. Ráðherra skipar formann nefndarinnar. Nú tilnefnir einhver framangreindra aðila eigi mann í veiðimálanefnd og skipar þá ráðherra í nefndina í hans stað. Varamenn skal skipa með sama hætti og aðalmenn.
     2. Veiðimálanefnd er ráðherra til aðstoðar um veiðimál og fer með þau mál sem henni eru falin í lögum þessum. Umsagnar veiðimálanefndar skal leita um setningu reglugerða um veiðimál.
     
     f. (90. gr.)
     Öll veiðifélög samkvæmt ákvæðum VIII. kafla laga þessara hafa með sér landssamtök, Landssamband veiðifélaga, sem gætir sameiginlegra hagsmuna þeirra.
     
     g. (91. gr.)
     1. Ráðherra skipar eftirlitsmenn með veiði þar sem þurfa þykir enda æski þess veiðifélag, eigendur eða notendur veiði og greiði kostnað af eftirlitinu. Um tölu þeirra og skipun skal leita tillagna veiðimálastjóra. Á sama hátt skipar ráðherra eftirlitsmann með klaköflun þar sem þurfa þykir og greiðir viðkomandi klakleyfishafi kostnað sem af þessu leiðir.
     2. Rétt er ráðherra að skipa eftirlitsmenn með því að bann við laxveiðum í sjó sé virt. Um tölu þeirra og skipun skal leita tillagna veiðimálastjóra og greiðist kostnaður við störf þeirra úr ríkissjóði.
     3. Eftirlitsmenn skulu hafa nákvæmar gætur á því að veiði í umdæmi þeirra sé stunduð með löglegum hætti. Þeir safna skýrslum, m.a. skulu þeir gera skrár um veiðivélar, lagnir og drætti í umdæmum sínum og sjá um merkingu veiðarfæra. Nánari fyrirmæli um starfsemi eftirlitsmanna setur veiðimálastjóri í erindisbréfi.
     4. Veiðimálastjóri gefur út skírteini handa eftirlitsmönnum.
     5. Eftirlitsmenn skulu eiga frjálsa för um veiðivatn, meðfram því og um netlög í sjó eftir því sem þörf krefur. Þeir hafa vald til að taka upp ólögleg veiðitæki eða veiðitæki sem notuð eru á óleyfilegum tíma eða óleyfilegum stað.

7. gr.

     Greinatala IX.–XVII. kafla laganna, svo og tilvísanir milli greina, breytist í samræmi við ákvæði laga þessara.

8. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 4. maí 1994.